Helstu fréttir

það eru búin að vera endalaus veikindi hjá okkur það sem af er þessu ári. Í gærkvöldi náðu þau svo hámarki þegar Alexander var fluttur á sjúkrahús með hraði ansi mikið veikur. Hann er kominn heim og á batavegi eftir viðeigandi meðferð lækna á Barnaspítala Hringsins.

Strákarnir komust ekki í skólann í dag vegna veðurs. Það var snælduvitlaust veður í nótt og morgunn. Mér skilst að það spái svo áframhaldandi snjókomu næstu daga. Þannig að veturinn er hvergi nærri búinn.

Í byrjun mars erum við hjónin að fara til Dóminíska lýðveldisins í tæpar tvær vikur. Tilefnið er fertugsafmæli húsbóndans. Það verður frábært að komast í sól og hita eftir ansi hreint leiðinlegt haust og vetur.

 Seinnipartinn í apríl kemur ný finnsk stúlka til okkar, Helena. Hún ætlar að vera hjá okkur í sumar. Reyndar þarf hún að skreppa í nokkra daga til Finnlands í lok maí þar sem hún er að útskrifast úr menntaskóla. Við hlökkum til að hitta hana.


Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó

Þá er stund milli stríða og smá tími fyrir bloggfærslu. Um helgina vorum við á Stokkseyri, buðum Andreu frænku með og gistum eina nótt. Gísli var reyndar að vinna. Við komumst ekki á Stk. um jólin sökum veðurs. Í gær fórum við svo í þriggja ára afmæli hjá Snæfríði Evu frænku okkar. Það var mjög gaman enda mjög, mjög langt síðan við höfðum séð frænkurnar. Mætti halda að maður byggi á Norðurpólnum.

Í morgun þegar ég fór í vinnunna var snjókoma og hafði greinilega snjóað heilmikið í nótt. Þegar ég kom heim úr vinnunni var ennþá snjókoma og enn snjóar. Í veðurfréttunum áðan var útlit fyrir enn meiri snjókomu næstu daga. Það er alveg spurning hvort ég verði að fara á traktornum mínum í vinnuna. Ég yrði nú vígaleg á traktornum með ámoksturstækin. Hef góðan spotta með mér ef ég þarf að kippa einhverjum upp:)

 

 


Annáll ársins 2007

Nú er árið 2007 senn á enda runnið. Það hefur verið nokkuð viðburðaríkt í mínu lífi líkt og undanfarin 9 ár. Við fluttum í nýja húsið okkar í lok janúar. það er búið að vera ósköp notalegt að búa í svo glæsilegu húsi að ég held að það teljist til forréttinda.

Búskapurinn hefur gengið ágætlega og sauðburðurinn gekk með besta móti. Heimtur í haust voru með ágætum og var kindunum fjölgað um 100. Það varð að taka hluta af hlöðunni og breyta henni í fjárhús svo hægt væri að koma öllum kindunum fyrir.

 Við fengum meri á árinu í skiptum fyrir fjórhjól. Hún hefur reynst okkur vel og er alveg dásamleg. Verst hvað maður hefur lítinn tíma til að sinna henni. Ég fékk líka 9 hænu unga sem reyndust vera 5 hanar og 4 hænur. Hönunum var slátrað öllum nema einum. Hænurnar eru byrjaðar að verpa en það er ansi erfitt að finna eggin því þær verpa bara þar sem þeim sýnist þrátt fyrir fínan heimasmíðaðan varpkassa. Það var svo hann Lubbi, lítill sætur hvolpur sem flutti í sveitina á árinu. Hann braggast vel og fer á hverjum morgni með húsbónda sínum í fjárhúsin.

 Í haust kom til okkar yndisleg finnsk stúlka sem var hjá okkur fram að jólum. Það var mjög gott að hafa hana hjá okkur og söknum við hennar mjög. Það er aldrei að vita nema það komi önnur finnsk í vor áður en sauðburðurinn hefst.

Alexander byrjaði í grunnskóla nú í haust og Guðjón fór í annan bekk og Pétur í níunda. Bjarki Blær er bara orðinn einn eftir á leikskóla.

Við Pétur skelltum okkur í helgarferð til Manchester á árinu. Það gekk mjög vel og áttum við góðan tíma saman.

Ég flutti í nýja leikskólann í ágúst sem var þvílíkur munur frá fyrra húsnæði. Starfsemin hefur gengið með ágætum og hefur börnum og starfsmönnum fjölgað nokkuð.

 Í september byrjaði ég aftur í pólitíkinni eftir nokkurra mánaða hlé. Það er mjög gaman að vera kominn af stað aftur. Fullt af spennandi og skemmtilegum verkefnum framundan.

 

Árið 2008 sem senn gengur í garð leggst vel í mig. Það eru mörg spennandi verkefni hjá mér á næsta ári. Það er alveg orðið spurning um að láta stóru draumana rætast. Meira um það síðar.

 

Guð gefi ykkur öllum gleði og gæfu á nýju ári.

Gleðilegt ár!!


Gleðileg jól

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Njótið nú jólahátíðarinnar í friði og ró með þeim sem ykkur eru kærastir.

 

 


Annar í aðventu

Undanfarnir dagar hafa verið nokkuð þéttir og því lítill tími til að blogga. Á föstudag fór ég á sameiginlegan sveitarstjórnarfund Akraneskaupsstaðar, Borgarbyggðar, Skorradalshrepps og Hvalfjarðarsveitar. Eftir fundinn fórum við í heimsókn í Menntaskóla Borgarfjarðar. Ég er algjörlega frá mér numin af því starfi sem þar er unnið. Við enduðum svo á jólamáltíð á Landnámssetrinu sem var æðislegt.

Í gær fór ég í verslunar og menningarferð til Reykjavíkur með þrjá yngstu synina. Við keyptum nokkrar jólagjafir og skelltum okkur svo í bíó. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fer með synina í bíó. Allt er jú einhvern tímann  fyrst...

Á eftir erum við að fara yfir til tengdó að mála piparkökur. Annars er ég bara að reyna njóta aðventunnar og vera ekki í einhverju jólastressi. Það gengur ágætlega með dyggum stuðningi eiginmannsins. Ég er farin að hlakka óskaplega mikið til að komast í jólafrí en ég verð í nokkuð góðu jólafríi. Reyndar var ég kosinn í að sjá um jólaballið í Lyngbrekku ásamt öðrum góðum konum. Þannig að ég verð eitthvað að baka á milli jóla og nýárs, það verður nú bara gaman. Annars ætla ég að reyna gera sem allra minnst um jólin og reyndar fyrir jól einnig.

Ég er enn í sjúkraþjálfun og ekkert útlit fyrir að því fari að ljúka. Ég er ýmist ágæt eða mjög slæm þannig að sjúkraþjálfarinn er orðinn alveg ruglaður. Ég fór svo til læknis á föstudaginn til að fá álit hans. Málið er að það er útbungan í liðþófa í hálsi sem er líklega að valda mér þjáningum mínum. Ef ekkert er að gert breytist það í brjósklos. Næstu vikurnar hjá mér verða því stífar í sjúkraþjálfun og vottorð um að gera sem allra allra minnst. Það er það erfiðasta í þessu öllu. Ég vil helst gera allt sjálf en nú gengur það ekki.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband